þar sleppa þjófarnir

Vitað er að ef KB lux verður seldur þá lokast fyrir upplýsingar um bankaræningja, kreppuvalda og skattsvikara Íslands. Það er betra að tapa bankanum alveg heldur en að láta glæpalýðinn sleppa. Við yrðum mjög hissa ef við gætum séð nöfnin á þeim sem fóru með peningana okkar úr landi í felur. Þetta eru góðborgarar sem brosa í sjónvarpsviðtölum og  fordæma þá sem komu landinu á kaldan klaka(og var nú kalt fyrir). Við horfum á þessa menn með stjörnur í augunum og kjósum þá á þing aftur ef þeir hafa ekki tekið pokann sinn fyrir síðustu kosningar. Við hérna á klakanum vitum ekki hver tók alla þessa peninga, það er eins og við teljum að huldufólk hafa tekið þá, einu nöfnin sem vitað er um eru Jón Ásgeir, Björgúlfarnir, Kallinn í samskip og svo þessi vatnsgreiddi sem flúði til Rúslands. Hvað með alla hina sem eiga reikninga í felum erlendis, hverjir eru það ?? Væri ekki hægt að fá lista yfir þá ?? Þetta er menn sem eru stórir í viðskiptum, útgerðarkóngar, fyrrverandi stórir byggingaraðilar og jafnvel háttsettir menn hjá ríkinu( sem fá sporslur fyrir samninga og greiða).

Þetta mál verður ekki upplýst nema VG fái hreinan meirhluta á þingi svo þeir geti refsað viðskiptamönnum íslands fyrir að hafa ekki lagt peninga í kosningasjóði þeirra (það hefur engin viljað kaupa þá hingað til). Ímyndið ykkur Ögmund eftir viðtal hjá Björgúlfi þar sem Björgúlfur segir: þið hjá VG eruð svo litlir og lélegir að við þurfum ekki að kaupa ykkur. Ögmundur mundi refsa þeim grimmilega ef þeir eru ekki búnir að kaupan nú þegar  SmileLoLGrin


mbl.is Vilja kaupa Kaupþing í Lúx
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Undarlegar hugrenningar þetta með V.g. Ætli einhver geti bent á dæmi um að V.g. sé til sölu?

Já, eða Ögmundur Jónasson.

Árni Gunnarsson, 13.5.2009 kl. 21:28

2 Smámynd: Baldur Már Róbertsson

mér hefur sýnst flest allir þingmenn séu til sölu, en spillingin virðist ekki hafa náð til VG enþá. Ég segi virðist vegna þess að það á margt eftir að koma uppá yfirborðið enþá. Ég tók Ögmund sem dæmi því hann virðist vera eini sem þorir að segja sína skoðun eins og Steingrímur gerði þar til hann fékk stólin sinn.

Baldur Már Róbertsson, 13.5.2009 kl. 23:26

3 Smámynd: Christer Magnusson

Þú segist ekki vita hverjir eru með reikninga í KB Lúx en segist svo vita það, telur þá meira að segja upp og hefur séð þá brosa í sjónvarpinu. Annað hvort veistu eða veist ekki, veistu eitthvað meira en við hin? Þú virðist líka vita að þeir séu allir þjófar. Þannig að ekki er þörf fyrir réttarkerfi sem rannsakar og dæmir og meginreglan að fólk sé saklaust þar til að sök hefur sannast er fokin í vind út. Það væri mikið ólán ef slík stefna myndi ná meirihluta á þingi.

Christer Magnusson, 13.5.2009 kl. 23:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband