Getum en bakkað út

Það er til löggjöf sem við getum beitt og er kölluð neyðarréttur þjóða. Við getum sleppt því að borga Icesave og höfum mörg rök fyrir því en það er spurning um þessa aula sem við höfum kosið til að stjórna landinu, ætla þeir að setja á okkur þessa skuldaklafa og ganga um göturnar með reisn eða eru þetta aumingjar og undirlægjur ?? Mér sýnist hið seinna verða ofaná og er það með ólíkindum að Geir láti Imbu svínbeyja sig í þessu máli bara til að hún komist inn í esb. Davíð og Guðni hefðu aldrei gert það enda foringjar. Hinir eru undirlægjur og aumingjar.
mbl.is Bar ekki að yfirtaka Icesave-skuldir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver ætlar að kjósa þessa aumingja aftur ??

Ég trúi ekki að samfylking og sjálfstæðisflokkur ríði feitum hesti frá næstu kosningum. Það er alveg á hreinu að ef Ingibjörg Sólrún og Geir Harde fá góða kosningu í næstu kosningum að þá eigum við ekkert annað skilið en að borga alla þessa vexti vegna þessara Icesave reikninga. Davíð komst rétt að orði þegar hann sagði " við borgum ekki skuldir óreiðumanna" og ég trúi því að hann mundi standa við það. Mér skilst að bretar ábyrgist ekki reikninga útlendinga í breskum bönkum en við þurfum að ábyrgast reikninga útlendinga í einkafyrirtækjum erlendis. Þetta er esb að kúga okkur til og ríkisstjórnin lætur kúga sig bara svo Ingibjörg komist í ESB. Þetta er ekki kjaftæði heldur heilagur sannleikur fenginn úr innsta hring ríkistjórnarinar. Við eigum að rísa upp gegn þessu því að þá verður kreppan miklu styttri og fólk á þá möguleika á að lifa hana af. Síðan eigum við að hafna aðild að esb og taka upp dollar sem gjaldmiðil því þá eigum við ekki í vandræðum með erlend viðskipti. þeir hjá esb vilja fá okkur inn til að komast í auðlindirnar okkar í framtíðinni og reyna núna þegar við erum með allt niður um okkur. Við skulum ekki gleyma að það voru einkafyrirtæki sem komu okkur í þessa vitleysu en ekki hin venjulegi Íslendingur.
mbl.is Icesave-lánakjörin enn óljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Raddir hvaða fólks ?? ekki mín rödd

Þarna er bent á 3menn, allir sjálfstæðismenn,  en hvað með Kvennalistalýðinn ???Imbu  esb og höfund Icesave þrælasamkomulagsins og Björgvin G BANKAMÁLA ráðherra  ??Þessi hópur sem kallar sig "Raddir fólksins" eru ábyggilega kvennalistakarlar í felulitunum.  Hættið að kalla ykkur rödd fólksins ef þið getið ekki verið hlutlaus í pólitík.


mbl.is Krefjast afsagnar Árna Mathiesen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig er hægt að treysta þessum manni ??

Þessi maður þykist vera Guðsmaður, hann fær útborgað um hver mánaðarmót og getur því fyrirgefið. En hvað með fólkið sem getur ekki haldið jól fyrir börnin sín vegna þessara glæpamanna sem rændu Ísland ?? Eða vina þeirra sem sitja í alþingishúsinu og fá launin sín þrátt fyrir að gera ekki neitt nema að auka á eymd fólks með því að samþykkja að greiða ICE SAVE reikninga, bara svo Ingibjörg eigi möguleika á því að koma okkur í esb. Ráðamenn voru hneykslaðir á því að snobbliðið gæti ekki haldið veislu á hótel borg vegna mótmæla en gerið ykkur grein fyrir þvíað þetta er rétt að byrja. Núna getur Björn Bjarnason farið að brýna sverðin hjá heimavarnarliðinu sem er tilbúið í að berja á lýðnum þegar það fer að hitna í kolunum. Þess ber að gæta að ég var að horfa á myndina Gangsters of New York.
mbl.is Þurfum þjóðarsátt um endurreisn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leitt ef starfsfólk meiðist en ......

Það er leitt ef starfsfólk 365 hefur meiðst í þessum mótmælum.  Við skulum passa uppá að ekkert ofbeldi sé gagnvart fólki sem er að sinna vinnu sinni. Tæki Baugsmiðla skipta engu máli því það eru verkfæri Jóns Ásgeirs til að verja sínar gjörðir sem og Ingibjargar til að láta okkur vita að mótmælendur séu ekki Íslendingar. Mín vegna má það allt fara á haugana sem og Jón og Imba frá Haugi. Við skulum ekki gleyma því að mótmæli Íslendinga og hvítþvottur þjófanna, Imbu og annara stjórnmálamannna er rétt að byrja. Þannig að maður býst við að þetta verði nú ekkert of friðsamlegt í framtíðinni.

 Gleðilegt ár.


mbl.is Fólk slasað eftir mótmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bónustíðindi í nýrri mynd

Um leið og skrifstofur mbl opna í dag mun ég segja upp áskrift minni að blaðinu, ég held að hagsmunagæsla eigenda verði meiri heldur en hagsmunir lesenda. Það er bara spurning hvenær Agnesi Bragadóttur verði sagt upp störfum eða greinar hennar hætta að birtast á prenti því hún er eini blaðamaðurinn sem hefur þorað að tjá sig á hreinni íslensku um snillinga eins og Jón Ásgeir.  Ég hef ekki lesið þessa grein hans Jóns en þegar hann spyr svona "Setti ég Ísland á hausinn?" þá get ég svarað því fyrir flesta íslendinga, já Jón þú átt stóran þátt í því. Þitt gervi veldi var byggt upp að stórum hluta á íslenskum peningum sem nú eru horfnir. þú átt nóg að bíta og brenna næstu 10aldir en það er ekki eins með margar fjölskyldur í landinu. Vissulega gerðir þú þetta ekki einn, forráðamenn kaupþings, Björgúlfarnir í Landsbankanum og undirlægjur þína í Glitni eiga stóran hluta af þessu gjaldþroti íslensku þjóðarinnar.

Einnig er vinnukona þín Ingibjörg Sólrún og hennar handbendi(þingflokkur) búina að hjálpa til við bjarga úr rústunum fyrir þig það sem hægt er að enduveðsetja sem og greiða fyrir þig skuldirnar. Þið stýrið umræðunni um þessi mál í gegnum eignarhald á fjölmiðlum þannig að núna verður maður að fá fréttirnar erlendis frá til að það sé trúverðugt(Þetta er líka dómur um blaðamenn á íslandi).    

Davíð hafði rétt fyrir sér þegar hann kallaði þig götustrák. Þetta er siðblinda.


mbl.is Jón Ásgeir tekur dóma nærri sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar=aumingjaskapur

Ætlum við að láta umheimin tala um okkur eins og aumingja ? Það stefnir allt í það vegna þess að Kvennalistinn vill ekki styggja esb með málaferlum og er skítsama hvernig við förum inn í esb jafnvel þó það verði skríðandi. Ingibjörg er búin að sýna það með valdshroka að hún ætlar inn hvað sem það kostar og síðast í gær hótaði hún stjórnarslitum ef hún fær ekki að stjórna SJÁlfSTÆÐISflokknum í þessu máli. Ég geri mér ekki grein hvaða annarlegu sjónamið eru að baki hjá henni en fyrir mér er hún í sama flokki og Jón Ásgeir, Björgúlfarnir og hinir þjófarnir sem við ættum að svifta ríkisborgararéttinum og reka úr landi. Imba frá Haugi hefði þurft eina aðgerð í viðbót, sjá hvort hægt sé að finna Íslenskt blóð í henni eða hvort það sé enþá tyrkneskt síða tyrkjarnir voru hérna fyrir 400árum síðan. Ég skil ekki Íslendinga sem vilja afsala sér sjálfstæði landsins til manna sem hafa herjað á okkur í gegnum aldirnar eins og bretar og Tyrkir hafa gert, og það sem meira er er það að sígaunar munu hafa meiri áhrif hjá ESB heldur en við. Verði ykkur að góðu.

Væri ekki nær hjá fólki að mæta á austurvöll og krefjast þess að ríkið hefji þegar í stað málsókn gegn bretum frekar en að vera atast út í embættismenn og alþingismenn. Þeir sitja hvort sem er fast á sínum rassi. Ég legg til að einhver þingmaður komi með tillögu um að ráðast í málsókn og það verði samþykkt á þingi. Þá sjáum við hverjir eru að vinna vinnuna sína þar inni og hverjir eru aumingjar. Davíð hefði aldrei látið fara svona með okkur. GEIR og IMBA eru AUMINGJAR ef þau klikka á þessu.


mbl.is Brown sparkaði í Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

jæja þar kom rétta andlitið fram

Núna er kvennalistakerlingin IMBA frá HAUGI búin að stilla sjálfstæðismönnum upp við vegg, og nú kemur í ljós hvort þeir eru gungur. Ef sjálfstæðismenn ætla að lúffa fyrir kerlingunni þá er það sjálfsmorð fyrir flokkinn og sýnir að þeir eru ekki hæfir í að stjórna landinu og hversu óhæfur Geir er. Ef þeir aftur á móti samkvæmir sjálfum sér og hafna að láta sjálfstæði þjóðarinnar til ESB þá munu þeir vinna kosningarnar næst því að meirihluti landsmanna vill ekki í ESB og sérstaklega ekki eftir framkomu þeirra í okkar garð að undanförnu. Samfylkingin deyr drotni sínum á næstu 10árum því að þeir sem hafa gáfur og heiðarleika til að vera í pólítíkinni ná engum árangri í þar inni. Þar þrífast helst ábyrgðalausar mussur og sjálfstæðismenn sem urðu undir í lífinu.

Guðni Ágústson sagði þetta allt í blaðaviðtalinu í dag, Davíð hefði aldrei leift TJALLANUM að fara með okkur eins og þeir hafa gert, en Imba MUSSA er með eitthvert hreðjartak á Geira þannig að hann er eins og hundur í bandi og tekur ekki á vandamálinu af hörku til að styggja ekki esb. Ef samfylkingin vill láta kjósa  þá er það gott því það er eini flokkurinn sem vill í esb og hann tapar.


mbl.is Hafa ekki tíma fyrir truflun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KB LUX= Vopnabrask og peningaþvottur

Við skulum ekki gleyma því að Búnaðarbankinn var viðriðin vopnasölu fyrir nokkrum árum og þá jafnvel til Lybíu, kannski KB hafi haldið áfram með þau viðskipti ?? En allavega þá fóru 100miljarðar frá KB Ísland úr landi vikuna fyrir þrot. Kannski Björgvin sé að reyna eða kemur kannski eftir nokkra daga "því miður var þetta ekki hægt vegna þess ......... " Við erum vön þannig svörum frá Samspillingunni.
mbl.is Kaupþing í Lúx ekki selt nema gögnin fáist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott mál

Þið sem þekkið Davíð vitið að hann hefði aldrei látið Bretana og evrópusambandið fara svona með okkur, þetta er besti maðurinn til að teyma þennan höfuðlausa her á alþingi í gegnum hörmungarnar sem dynja á okkur þessa dagana. Hann mundi sýna ESB og Bretum hvar Davíð keypti ölið. Hættu þessu bankastarfi og reddaðu okkur út úr þeirri vitleysu Imba og Geiri eru búin að koma okkur í.
mbl.is Davíð: „Þá mun ég snúa aftur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband