Ekki Davíð að kenna
9.10.2008 | 13:46
Skrýtið að það sé ekki hægt að klína þessu á Davíð. Stöð 2 virðist vera á launum hjá Jóni Ásgeiri og skipstjóranum að norðan við að rakka niður mister Oddson og hafa kennt honum um bruðl og heimsku útrásar drengjana, en það var léleg enskukunnátta dýralæknis úr þykkvabænum sem varð þess valdandi að Kaupþing fór á hausinn. Skildi það hafa ekkert að gera með vanhæfni stjórnenda bankans að gera ??? Er ekki kominn tími á að Háskólinn á Íslandi athugi hvað er verið að kenna þessum vatnsgreiddu jakkafataguttum í viðskiptafræðinni þeir eru búnir að setja Ísland á hausinn. Takk strákar
Samtal við Árna réð úrslitum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Bílar og akstur | Facebook
Athugasemdir
Útför kapítalismans þarf að fara fram hratt og fumlaust, nályktin af útblásnu flykkinu er að verða óbærileg.
Georg P Sveinbjörnsson, 9.10.2008 kl. 13:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.