Kristinn lenti ekki í skjálftanum

Það er auðheyrt að Kristinn H Gunnarsson lenti ekki í skjálftatjóni en hann ætti að vera þess minnugur þegar náttúruhamfarir gengu yfir hans kjördæmi. Ég sjálfur lenti í tjóni sem ég fæ ekki bætt þó svo að húsið og innbúið sé bætt að fullu. Mjög margir sunnlendingar fá bætur en það er oft sem það bætir bara hús og innbú (og ekki alltaf að fullu) en ekki skráð ökutæki sem stóðu inní bílskúrum,óskráða sólpalla og annað dót sem var utandyra. Þannig að ég held þið þessir halar sem búið fyrir utan stórskjálfta svæði ættuð að loka á ykkur þverrifunni það gæti farið að hristast undir ykkur jörðin í nótt og eitthvað gæti skemmst hjá ykkur.

Kveðja af skjálftasvæðinu


mbl.is Ráðherrum ekki treystandi fyrir löggjafarvaldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um að gera að láta hann setja annað stórveldi á hausinn

Það er alveg sérstakt hvað menn í Reykjavík fá mikil verðlaun fyrir að vera lélegir í rekstri, hann er búin að setja moggan á hausinn og núna á MS að fá að kenna á því. En bændur hafa Það svo gott að þeim munar ekkert um það og svo þar fyrir utan að þá hafa forstjórarnir í MS ekkert getað gert nema tapað peningum þrátt fyrir einokun á markaðnum. Þeir eyðilögðu MBF, lokuðu Borgarnesi og eru svo að halda úti rekstri í Búðardal. Þeir eru ekki í standi þessir snillingar
mbl.is Einar Sigurðsson frá Árvakri til MS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

siðleysi kvennalistans

Þarna sést það best siðleysið, Jóhönnu finnst ekkert að því þótt að Lúlla hafi verið sleppt frá gjaldþrota fyrirtæki um áramótin án nokkurar ábyrgðar. Ef þetta hefði verið frá framsókn þá héti það spilling og sjálfstæðismenn hefðu sótt ofsóknum frá baugsmiðlum en Lúlli má alveg sukka svert og sigla í einkaskútu litla Jóns, hann lætur ekki kaupa sig, eða þannig. Skítapakk
mbl.is Fjármál Lúðvíks ekki ástæðan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott hjá þér Davíð

Rök Davíðs eiga alveg rétt á sér og er það alveg með ólíkindum að kvennalistin skuli reka hagfræðing og ráða lögfræðing í forsætisráðuneytið í miðri kreppu en ætla síðan að nota þau rök að Dabbi sé ekki hagfræðingur og verði því að hætta. Þetta sýnir tvískinungshátt kvennalistans mjög vel, en það er einkennismerki þeirra. Þau eru búin að nota 365miðla við að rægja Davíð og hafa reynt að persóngera kreppuna í Dabba í stað þess að skoða aðaleiganda 365miðla og sjá hvað hann er búin að gera við peningana sem hann hefur náð út úr bankastofnunum með sviksamlegum hætti eins og t.d að keyra upp verð á ónýtum hlutabréfum. Kvennalistinn og forsetaembættið eru málpípur baugs og seldu sig þar fyrir lítið gjald, enda ódýrt lið. Ég held að Kvennalistinn ætti að reyna að standa við eitthvað af stefnuskrá ríkistjórnarinnar í stað þess að liggja andvaka á kvöldin og hugsa um það eitt hvernig eigi að losna við einn mesta stjórnmálamann seinni ára úr seðlabankanum. Ég fullyrði það að ef Davíð hefði verið forsætisráðherra þegar allt hrundi þá væri hann búin að keyra þjóðina mun lengra upp úr öldudalnum heldur GEIR,IMBA og JÓHANNA gætu nokkurtíma gert. Davíð er leiðtogi og verkstjóri sem lætur fólk vinna vinnuna sína.
mbl.is Davíð segir ekki af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

sjá blogg mitt 28 januar síðastliðinn

http://brobba.blog.is/blog/brobba/entry/787763/

Þetta var tilvonandi dómsmálaráðherra


mbl.is Fjármál Lúðvíks komu í veg fyrir ráðherrastól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja, hvar ætli þessir peningar hafi endað ??

Hvar eru þessir peningar ?? Hvað ætli þeir séu margir sem eiga þessa peninga í dag ?? Getur verið að þetta séu 10-20manns, einkavinir og stórhluthafar bankans ?? Eru þessir peningar í karabískahafinu á reiknigum fyrrum yfirmanna bankans ?? Ég bara spyr afþví að ég þarf sennilega að borga hluta af þessu rugli og ríkistjórnin er svo mikið tengd þessu sukki að þeir koma aldrei til með að reyna að ná í þá til baka. Steingrímur kom vel útúr skoðanakönnun um dagin vegna digra yfirlýsinga um hvað hann ætlaði að gera ef hann kæmist til valda en hvað skeði ?? Jú hann er fjármálaráðherra er ekki að gera neitt til að ná í peningana til baka,það er svo gaman að vera ráðherra og kvennalistinn er mjög tengdur við spillinguna svo að það er betra að þegja út í horni og halda stólnum.  

Afhverju eru þeir ekki að skoða færslurnar í kaupþing Lux ?? Þeir eiga bankann en sennilega gefa þeir hann svo engin sjái hvert peningarnir fóru því að þeir eru of tengdir og þeirra nöfn munu koma upp við ýtarlega skoðun.

Ég sagði það og segi aftur SKÍTAPAKK.


mbl.is Afskrifa tæpa þúsund milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var kominn tími til

Það eru 4mánuðir síðan íslenska hagkerfið pommpaði aðeins niður og aðaleg af völdum manna eins og Jóns. Er fólk búið að gleyma hversu miklu sparifé jón ásgeir og björgúlfarnir eru búnir að stela út úr hagkerfinu okkar ??? það voru þeir sem keyptu hlutabréf hvor í öðrum til að hækka gengi bankana sem síðan hækkaði gengi bréfa í þeirra eign sem þeir síða seldu sjóðum sem geymdu sparifé almennings.  Svo les maður hér um fólk sem er að verja þennan krimma og kenna davíð um, hvað er að fólki ?? eruð þið heilalausir hálvitar ?? Það á að taka bjöggana líka og þjóðnýta West Ham,actavis og straum. Síðan á að reka þá úr landi í stað þess að þurfa að gefa þeim að éta í steininum. Þessir menn stálu frá ömmum okkar og það eigum við ekki að líða.


mbl.is Glitnir gjaldfellir lán Baugs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er verið að vernda störf stjórnenda blaðsins ??

Til hvers að bjarga blaðinu þegar blaðamannastéttin er búin að sýna að henni er ekki treystandi ?? Hún er jafn föl og stjónmálamenn. Það vantar alla rannsóknarblaðamennsku og frumkvæði í stéttina og ef menn hafa frumkvæði eins og kompás strákarnir að þá eru þeir reknir. Sorry ég kaupi ekki hlut í þessu.
mbl.is Vilja Morgunblaðið í eigu almennings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hvað fór stór hluti í vasa bankastjóranna ??

Ekki benda á mig söng Bubbi Mortens einusinni, og núna eru KB snillingarnir farnir að syngja með, það kom fram í rúv kompás í kvöld að þeir KB félagar lánuðu erlendu gjaldþrota fyrirtæki yfir 250,000,000,000 eða miljarða og einhverra hluta vegna fór það inná reikninga í skattaparadísinni á jómfrúareyjum. Af hverju ?? Var það vegna þess að hluti upphæðarinnar fór inná einkareikninga Bankamanna og viðskiptafélaga lántakandans ?? Ég held að þessir menn hljóti að lenda í grjótinu fyrir skattsvik því ekki er hægt að dæma fyrir siðferðisbresti eða siðleysi. Skildi Jón Ásgeir hafa látið reka Kompásmennina fyrir þessa frétt ??? Og Sigmundur Ernir ! hann hefur varið þá vegna heiðarleika síns og þá voru allir reknir.

Skyldi samfylkingin geta tekið á þessu máli ?? Þeir eru jú tengdir Baugi og bónusmiðlum því annars væru komin fjölmiðlalög og Sigmundur hefði vinnu ásamt kompás fólkinu og fréttin hefði verið birt. Ég held að það verð erfitt fyrir tilvonandi Dómsmálaráðherra að berja á þessum krimmum og bröskurum ef hann hefur verið mikið að þvælast um í einkaþotum og skútum á þeirra vegum. Og svo skulum við ekki gleyma því að hann er sjálfur búin að vera á kafi í braski sem hefði sett venjulegan mann á höfuðið en hann sleppur kannski við að bera persónulega ábyrgð eins og venjulegt fólk þarf að gera. SKÍTAPAKK


mbl.is Milljarðalán skömmu fyrir hrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÚV kompáss og atlaga.

Ekki benda á mig söng Bubbi Mortens einusinni, og núna eru KB snillingarnir farnir að syngja með, það kom fram í rúv kompás í kvöld að þeir KB félagar lánuðu erlendu gjaldþrota fyrirtæki yfir 250,000,000,000 eða miljarða og einhverra hluta vegna fór það inná reikninga í skattaparadísinni á jómfrúareyjum. Af hverju ?? Var það vegna þess að hluti upphæðarinnar fór inná einkareikninga Bankamanna og viðskiptafélaga lántakandans ?? Ég held að þessir menn hljóti að lenda í grjótinu fyrir skattsvik því ekki er hægt að dæma fyrir siðferðisbresti eða siðleysi. Skildi Jón Ásgeir hafa látið reka Kompásmennina fyrir þessa frétt ??? Og Sigmundur Ernir ! hann hefur varið þá vegna heiðarleika síns og þá voru allir reknir.

Skyldi samfylkingin geta tekið á þessu máli ?? Þeir eru jú tengdir Baugi og bónusmiðlum því annars væru komin fjölmiðlalög og Sigmundur hefði vinnu ásamt kompás fólkinu og fréttin hefði verið birt.


mbl.is Atlaga felldi íslenska kerfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband